miércoles, 30 de noviembre de 2011

Zansibar og Mafiu Gleði


Jæja þá held ég bara að það sé kominn tími á nýtt blogg. Margt hefur gerst síðan seinast skal ég segja ykkur. Jake og John vinir Berit komu frá bandaríkjunum fyrir rúmlega mánuði og eru þeir mestu yndin. Þeir eru báðir 60 og eitthvað og er Jake pínulítill og já jafn breiður og hann er hár. Hann ætlar að vera hérna í 6 mánuði og byggja vatnsbrunn og fleira. Hann var eitthvað að spurja mig þarna rétt eftir að hann kom hvernig fjölskyldan mín væri og einhvern veginn kom það upp að ég ætti engan afa á lífi þannig að hann sagði bara að ég mætti kalla hann afa og er það yyndislegt að eignast “nýjan” afa skal e´g segja ykkur haha. John var bara hérna í 3 vikur en hann er líka algjört krútt og svona týpískur afi líka en þar sem hann var svo stutt hérna hþá tók það því ekki að stofna þetta afa-barnabarns samband ef þið vitið hvað ég meina. Jæja svo mætti hin yndislega Lis frá Danmörku. Hún er fimmtug(já þetta unga lið er að trylla bæinn hérna) en já hún er s.s hérna í mánuð og er algjört yndi. Og er hún bara eins og stjúpmóðir mín. Já það er ekki leiðinlegt að eiga tvær fjölskyldur og eina og svona alþjóðlega:)

Svo þann 29. Október forum við í smá fjallgöngu. S.s ég, Lene, Jonathan og nokkrar stelpur úr centerinu. Við löbbuðum uppá Selebu sem er hmm held ég sovna 800 metrar. Það var frekar magnað. Sjúklega bratt aaaallan tímann og ekki einu sinni láta ykkur detta það í hug að það hafi verið einhverskonar stígar eða e-ð til að fara eftir. Maður fór bara þá leið sem manni fannst vera hentugust eða auðveldust. Svo þegar við komum upp, eða þau sem komust upp, fengum við okkur hádegismat og já sáum svo Fílakúk. Nýjan meira að segja. Hefði verið frekar magnað/hættulegt að hitta á fílana. En já svo forum við niður eftir nokkrar myndatökur og verð ég að segja að stundum var ég viss um að e´g væri að fara að deyja. Guidinn sem var með okkur vissi ekkert hvert hann var að fara þannig að við forum bara einhverja leið og svo allt í einu vorum við á stórum stein eða e-ð og kannski 10 metrar niður þannig að við komumst ekki neitt þannig að já við þurftum mjöög oft að snúa við og fara til baka og já klifra í gegnum trén. Held að þetta hafi tekið rúmlega 9 tíma. En já þetta var mjög skrautlegt og sjúúklega gaman.

Jæja þá er komið að gleðinni! Zansibar og Mafia! Je man!
Þann 16. Nóvember tók ég rútuna hérna í Ilula til Dar es Salaam. 8 tíma ferðalag umkringd 4 sextugum ítölum sem töluðu ekki stakt orð í ensku. En það var nú samt meiri gleðin því við spjölluðum sjúklega um mikið um lífið og tilveruna. Ekki það að ég skildi e-ð hvað þeir sögðu og þeir skildu mig örugglega ekki heldur þar sem já seinast þegar ég vissi þá talaði ég ekki ítölsku. Eníveis þá var þetta bara mjög fínt og svo um 5 leitið kom ég til Dar. Tinna tók þar á móti mér ásamt öllu liðinu á rútustöðinni. Endalaust af fólki og þau eeelska hvítt folk og þau elska líka að pirra það sjúklega mikið og elta. En já við tókum Daladala að YMCA þar sem ég gisti. Svo fór Tinna og Gabríel strákur sem er að vinna með henni til baka og ég hitti 3 stráka á ymca og stukkum við á subway(já það er til subway í Tanzaníu) og fengum og svo smá að drekka. Rosa fínt. Svo komu Simon og Torben, sjálboðaliðar frá þýskalandi og forum við á Holiday inn og tjilluðum við aðeins þar uppá þakinu með nokkra kalda. Yyyndislegt alveg.
Jæja svo daginn eftir vöknðum við kl 5 og forum í daladala út á rútustöðina. Á leiðinni tókst mér að sjálfsögðu að detta og fékk svona smá sár framan á ristina. Undir venjulegum kringumstæðum væri þetta ekki merkilegt en þið sjáið hérna á eftir hvað verður um þetta litla Ódjúpa sár. Jæja svo hittum við Tinnu, Carolu(dk), Rebeccu(swe), Lisu(Sviss), og Robert(þýsk.) á rútustöðinni. Þar fundum við svona mini rútu og forum með henni eitthvert og skiptum þar yfir í aðra og forum með henni í einhvern pínu bæ fyrir sunnan Dar og var það 3. Tíma akstur. Þar fengum við okkur smá hádegismat og spiluðum uno og forseta og svo forum við í bátinn sem átti að fara með okkur til Mafiu. Þetta var nú enginn snekkja verð ég að segja. Við þurftum að vaða og klifra yfir í þennan eldgamla trébát. Fullan af fólki og já við vorum einu túristarnir eða eina hvíta fólkið þannig að við fengum frekar mikla athygli þarna og fylgdust allir frekar vel með okkur. Svo ætlaði ég að taka mynd þegar við vorum að klifra yfir í bátinn en þá var það stranglega bannað. Ég er nokkuð viss um að þetta hafi verið kolólöglegur bátur. Jæja ferðin tók 3+ tíma. Og alveg nokkrum sinnum héldum við að við myndum deyja hah. Fyrst var bara sól og yndislegt veður en svo var bara kalt og rigning og við fengum sjóinn yfir okkur og sáum ekkert land eða bara mjööög langt í burtu. Það var ekkert voðalega yndisleg tilfinning. En þegar við komum í land var ótrúlega fínt veður og var sólin akkurat að setjast. Á móti okkur kom guidinn okkar Shamey og er hann mjög fínn. Hann fór með okkur uppá hostelið okkar sem var nú frekar cheap en við borguðum rúmlega 1000 kr á nóttina þar. Við vorum 3 daga á Mafiu og var það yyndislegt. Fyrsta daginn forum við að snorkla og hittum við Nemo og Dóru. Þau voru hress. Og svo forum við á chole Island og sáum Fox Bats eða fljúgandi refi. Þaað var magnað. Og svo sáum við the magic coconut tree sem fer í hring (sjá myndir á feis). Svo daginn eftir forum við að synda með Whale Shark. Það var alvöru magnað. Við stukkum útí sjóinn og þarna var hann bara að tjilla og vorum við svona meter frá honum eða svo og hann gerði ekki neitt. Sá sem við sáum var um 5 metrar en það er víst bara lítið. Svo þegar hann fór ætluðum við að reyna að finna annan en þá bilaði báturin og það byrjaði að rigna sjúklega mikið og þá varð sjúklega kalt og við sáum ekkert land og þá enn og aftur héldum við að við værum að fara að deyja hah. Svo föttuðum við að sjórinn var bara heitur þannig að við stukkum út í en þá föttuðum við líka að það gætu hugsanlega mögulega kannski verið hákarlar þarna þannig að við vorum fljótar fara aftur í bátinn. Loksins komumst við svo til baka og um kvöldið forum við á ströndina og horfðum á sólsetrið og bjuggum til smá brennu og elduðum spaghetti og horfðum á stjörnurnar. Ljúfalíf!.
Jæja daginn eftir fóru strákarnir og Rebecca með bátnum til baka og við hinar tókum flug til Zansibar. Það er yndisleg eyja. Semí eins og að koma bara til Arabíu, ekki það að ég hafi komið þangað en það eru næstum bara múslimar þarna og allt út í svona litlum búðum með gömlu dóti og vatnspípum og já æjji það er svona arabíustemmari þarna bara. Við gistum á Jambo inn hotelinu sem er í Stone Town. Jájá það var bara fínt, mjög vel staðsett. Mögulega besti veitingastaður sem e´g veit var bara 2 skrefum frá borðuðum við öll kvöldin þar og svo í hádeginu áður en við forum til baka hah. Svo daginn eftir tókum við daladala á Paje ströndina á austurströnd Zansibar. Það var gullfallegur staður. Það var líka nánast enginn þarna þannig að það var bara hvít strönd, heitur tær sjórinn og við. Þar eyddum við öllum deginum í sólbaði bara (já þetta var 21. Nóvember) og forum svo til baka og hittum Rebeccu og Lydiu sem er líka frá Svíþjóð. Svooo daginn eftir forum við í spice tour og komumst við að allskonar hlutum um ávexti og krydd og fleira. Svo um kvöldið forum við bara á ströndina hjá Stone town og horfðum við á yndislega sólarsetrið og forum svo aftur á Green Garden veitingastaðinn okkar og fengum okkur ljúffenga pizzu. Svo (já mér finnst gaman að segja svo) daginn eftir fórum við að synda með höfrungum. Vöknðum snemma og keyrðum eitthvert á einhverja strönd og fórum svo í bát og sigldum út á haf. Svo þegar gæjinn sagði okkur að stökkva stukkum við útí og sáum fullt af höfrungum beint fyrir neðan okkur og svo sáum við þá líka stökkva og svona skemmtilegt. Yndislegt alveg.
En já ég gleymdi að segja að í Dar og Mafiu og Zansibar eru skriiilljón mosquito flugur og ég skal segja ykkur það að þær í alvörunni elska mig. Ég held að ég hafi fengið rúmlega 20 bit bara á einn fótinn og svona 10 á hinn og svo bara útum allt og þarna í lokin var vinstri fóturinn minn orðinn sjúklega bólginn og ógeðslegur (svolítið svona eins Ellenar fótur eftir Kúbu) og sárið þarna sem ég fékk í byrjun var ógeðslegt og að öllum líkindum kominn gröftur í það. Yummi. En þegar við komum til baka til Dar var fóturinn svo ógeðslegur þannig að ég hringdi í múttu og hún sagði mér að fara upp á spítala þannig að Daginn eftir tók ég leigubíl upp á spítala og eyddi dágóðum tíma þar og fékk 3 pakka af pillum og krem. Já núna er ég búin að heimsækja tvo spítala í Tanzaníu. Þessi var samt öllu betri og bara mjög líkur landspítalanum eiginlega. En þegar ég komst loksins útaf spítalanum hitti ég tinnu og fórum við í Mollið hérna, eina mollið í Tanzaníu og svo á muenge Markaðinn og keyptum svona smá afríkudót. Svo núna á laugardaginn tók ég 9 tíma rútu til baka og var tilfinningin smá eins og að koma bara heim. Og í dag eru bara 19 dagar í heimkomu á klakann. og bara 18 dagar í meetið í london! Já tíminn líður sko hratt.! Vúíí!
Jæja nú held ég að þetta sé bara komið gott. Bless kex!

miércoles, 23 de noviembre de 2011

Hvert for november?

Nei i alvoru, tessi manudur leid eins og honum vaeri borgad fyrir tad ( grunar pabba). Lifid gengur sinn vanagang herna i Valencia, vinnan er a sinum stad, baedi barvaktir og morgunmatsvaktir. Tad er reyndar buid ad vera litid um folk a hostelinu, sem er vist vanalegt i november en koma stundum storir hopar a helgum og ta meira segja fyllist oft hostelid. Hoparnir geta oft verid med leidinda sertarfir, einu sinni turfti eg ad maeta i morgunmatin kl half fimm! Annars er eg er ad kynnast samstarfsfolki minu meira og meira og tad er upp til hopa algjorir meistarar og eg a eftir ad sakna teirra mikid tegar eg sny aftur.
Fyrir akkurat viku skellti eg mer til Tyskalands til Gerdu minnar, flaug reyndar svolitid seint, lenti kl ellefu um kvoldid i minus tveim gradum (helt i alvoru ad eg myndi deyja) og turfti sidan ad taka tveggja klukkustunda rutu til Mannheim tar sem Gerda kom hjolandi a rutustodina med kako og kex! Sidan hjoludum vid heim ( Asgeir var buin ad koma odru hjoli fyrir fyrr um daginn) sem tok sirka korter, mjog hressandi! Svo um morguninn fekk eg tvo undurfalleg krakkaknus adur en tau skottudust i skolann. Vid brolludum ymislegt tessa fimm daga, forum i mollid og downtown Mannheim, bornin til tannlaeknis og svo forum vid lika til Neustadt, sjuklega kruttlegur baer og naestum fjall bak vid hann. Bordudum sidan godan mat a itolskum veitingastad tar i bae, mega fint. Kvoldin einkenndust af videochilli med ymist poppi eda randyrum Tomma og Jenna is, klarlega tess virdi samt. Svo drakk eg svona 3 litra af mjolk (hef ekki alveg verid ad finna goda mjolk herna a spani) tvi Gerda keypti svona eiginlega sveitamjolk og kalfurinn eg let hana gott sem ekki i fridi! Eg gat loksins komist adeins a skype og gat talad vid mommu og pabba i fyrsta skiptid sidan i september! Bornin tala oendalega goda tysku og Gerda er bara alveg mjog frekar god lika. Eg hins vegar stod alveg a gati tegar budarkonur og almenningur hopadist ad mer ( fraega typan), eg endadi alltaf a tvi ad segja eitthvad a spaensku ( eg er manneskja svo margra tungumala nuna sko, eiginlega vandamal) sem er mjog skritid tvi eg kann svosem ekkert i spaensku heldur. Tessir fimm afangar i tysku voru ekki alveg ad skila ser en eg aetla ekki ad kenna Gudrunu Erlu tyskukennara um tad, hun er gull af konu, tyskan myndi orugglega rifjast upp ef eg hefdi dvalid tarna lengur. En tvi midur turfti eg ad snua aftur til Spanar a manudagseftirmiddegi eftir undursamlega goda helgi.

Heyrdu, um daginn ta keypti eg einnota myndavel i svona kinabud (tar sem tu finnur an grins allt sem hugrinn girnist a svona eina evru) og eg tok margar snilldar myndir a hana..helt eg. En tegar eg skila henni se eg ad hun er utrunnin svo eg fekk a endanum 4 myndir af 27 til baka. I myndum, ekki diski eins og eg helt eg myndi fa. EN svo keypti eg adra og tok nokkrar godar myndir og setti hana i framkollun i dag og fae myndirnar a diski i lok vikunnar. Svo eg vonandi get sett myndir inn i naestu viku =) Alvoru myndavelin min hlytur lika ad fara hressast og ta tek eg fullt a hana og set svo myndir inn tegar eg kem heim!
En ja, annad var tad nu svo sem ekki merkilegt hedan. A tridjudaginn koma Halla og Tordis (voru med okkur i Sevilla) i einn dag og eg reikna med rosa fjori tar og a laugardaginn eru tvaer vikur tanga til eg fer til Moltu i 4 daga heimsokn til Arnars ( Orn haha) og skoda hvernig hann er ad standa sig i ad vinna a sinum bar, tar sem eg er ordinn barserfraedingur! Svo a eg flug til london 18 desember og heim 19!


Afsaka stutt og lelegt blogg. Betra en ekkert samt held eg. Elin kemur sidan med einhverjar paradisarsogur fra fridogum sinum a Zanzibar og Mafiu, baetir vaentanlega upp tetta sorglega blogg =)

Sakna ykkar, minna en manudur i heimkomu!

Ellen

viernes, 4 de noviembre de 2011

A eg bara ad keppa vid tessar Afrikusogur?

Eg er farin ad sja eftir tvi ad hafa fengid tessa snilldarhugmynd ad hafa sameiginlegt blogg, sogurnar hennar Elinar eru ad rusta minum svo grimmilega ad hinir elstu menn muna varla annad eins. En eg verd samt ad reyna bretta upp ermarnar og ykja bara sogurnar fra Valencia bara enn meira!
Myndavelin liggur enn a gjorgaesludeild myndavelasjukrahusins i Valencia, eg hef ekkert af henni allavega,blessadri. Kannski er tad utaf tvi ad madurinn sem tok vid henni taladi einungis spaensku og eina sem eg skyldi var ordid >fostudagur. Var hann ad meina i dag? eda sidasta fostudag? Eg veit tad ekki alveg. Eg fer til hans eftir helgi. Svolitid haettulegt ad kunna eiginlega ekki tungumalid, eg for i klippingu fyrir stuttu og konan taladi ekki stakt ord, eg helt tetta yrdi nu ekkert flokid, eg einfaldlega syndi henni hvad eg vildi ad hun taeki mikid af hari (slitnir endar, tekkid tetta stelpur). En hun sem sagt byrjadi a tvi ad skola a mer harid og svo greiddi hun tad, tok upp skaerin og labbadi hnitmidadann hring i kringum mig...fint..klippingin buin! Eeee nei ekki fint, eg hefdi geta gert tetta sjalf, er med beinustu enda i heimi nuna, prins Valiant fyrir lengra komna. En tetta er rosa heit klipping herna i Valencia, svo eg hef engar ahyggjur her. Bara ekki hlaegja tegar eg kem heim..
En annars gengur lifid sinn vanagang i Valencia, tad er farid ad kolna adeins,ekki kolna samt, fer alltaf yfir 16 gradurnar, nema tegar tad rignir, og tad er buid ad rigna svolitid herna nuna, svona sjuk utlandarigning, mjog toff. Reykjavik og Valencia eiga alveg margt sameiginlegt en tad eru lika mjooog mikil olikindi. T.d. leidast allir herna,sem sest ekki a Islandi haha, madur er bara i minus ef einhver kyssir einhvern beint a munninn a Laugarveginum en her eru allir i bullandi skrufusleik daginn ut og daginn inn,gaman ad tvi! Svo eru unglingarnir herna, teir reykja eiginlega allir. Greinilega engin Rut Reginalds her til ad segja teim ad tad se algjor vitleysa ad reykja, svekk a tau. En tau safnast saman a kvoldin med sangriu i fernum og fa ser i glas og sma smok. Stundum ad horfa a Latabae bornin god. Ja, svo er eitt annad sjuklega fyndid, allar goturnar fara i somu att einhvernveginn.meira segja tessar storu, 3 akreina..allar i somu att.Vid islendingar sotbolvum tessum ooorfau einstefnugotum a Islandi. Og sidast en ekki sist, tad ad vera islendingur er tad svalasta i heimi herna. Spanverjunum finnst tad rosa toff en ferdafolkid a hostelinu missir hreinlega andlitid. Jesus hvad eg hef eytt morgum minutum i ad sannfaera folk ad tad seu hus a islandi (ekki snjohus) og tad se ekki eins kalt og allir halda og ja tetta er rosa fallegt land og ja eldfjallid einmitt, Bjork og Siguros. Og allir segja >Va tu ert fyrst islendingurinn sem eg hitt i LIFI MINU!! Sjuklega sattir.

Vinnan er a sinum stad, morgunmatur og barvaktir. Baedi fint, meira lif a kvoldin samt. Eg er samt buin ad vera mikid a virkum dogum a barnum og ta er vodalega litid ad gera, nema tad seu einhverjir hopar eda nokkrir saman. Lennti a einum gomsaetum um daginn, 4 astralar a aldrinum 20 til 27 sirka og vid vorum ad spjalla og svona toludum eiginlega i endalausum frosum ur sjonvarpstattunum Scrubs sem allir eiga ad kannast vid! og daginn eftir ta var eg i frii en hitti ta a hostelinu og akvad ad fara med teim a svo kallad Pub crawl eda Pobba rolt. Ta kemur svona farastjori klukkan 12 a kvoldin og labbar a 6 hostel og safnar lidi til ad taka med ser a 4 bari og tar faerdu tilbod a barnum og fria drykki og bla bla, borgar 10 evrur sem er allt i godu tvi tad kostar 10 evrur inna suma stadina hvort ed er.Tad eru svona 5 farastjorar ad vinna sittihvort kvoldid og tad er allt toppfolk og stoppar oft adeins a hostelinu og spjalla sma og svona. En ja eg for sem sagt med Astrolunum felogum minum og tad var i fyrsta skiptid sem eg for nidri i Carmen hverfid sem er adal skemmtihverfid tvi eg hef bara alltaf farid med lidinu a hostelinu a uppahaldsbarinn teirra sem er adeins lengra fra og er svolitil blanda af Dillon og Ellefunni en allt i lagi samt. En vid forum a 3 eda 4 stadi og eg datt i sma gotufotbolta i millitidinni, tryllti spanverjana med taekni minni i boltanum, ekki kollud taeknitrollid fyrir ekki neitt. En ja midad vid ad tad var midvikudagur ta var tetta storgott kvold,enda veltur tad mikid a hopnum hvort tad se gaman, ekki deginum.
Svo var Hrekkjavaka herna um daginn og tad var party a hostelinu, skreyttum allt i holf og golf og allir i buninga. Eg keypti minn klukkutima fyrir, lak i eh bud og tuss og var draugur..lelegt midad vid reynslu mina af grimubuningum eg veit, en eg hafdi bara ekki tima til ad lata senda mer Stubbabuninginn,Graena Kallinn eda hina buningana sem eg bar af herna i denn, gott kvold engu ad sidur!
Heimilislifid gengur fint, stundum koma dagar sem eg varla rekst a tetta blessada folk sem eg by med,eru annadhvort eh stadar uti eda inni herbergi eda i skolanum. Kevin felagi laetur vita ef hann er heima, ta eru graejurnra settar i botn og sungid med, elska tennan dreng!
Mer finnst eg vera sjuklega dugleg ad elda, tott eg eigi tad til ad gera alltaf bara tad sama. Enn samt hafa rettir eins og Kjuklingagrjonarettur, Hakk og Spakk, Takko og dyrindis samlokur litid dagsins ljos. Nuna fyrr i dag bretti eg heldur betur upp ermarnar tegar eg steikti kjukling, saud 2 egg, bjo til heimagerda piparostasveppa dressingu (heita sko) og skar nidur graenmeti og kal og bombadi tessu saman..framtidin er bjort fyrir matargerd a islandi, minna verdur ekki sagt.
Naest a dagskra er adalega vinna, vid Helga aetlum samt ad kikja a sjavardyrasafnid herna i naestu viku, tad a vist ad vera algjort brill. En audvitad teeel eg dagana i Tyskalandsfor mina til Gerdu og co. Get ekki bedid!

Eg hvet ykkur ad lesa bloggin hennar Elinar herna fyrir nedan ef tid erud ekki tegar buin ad tvi, algjort lostaeti!

Sakna ykkar allra!

Kvedja fra Valencia!